Sjúkraflutningaskólinn

Sjúkraflutningaskólinn

Námskeið


Skráningartími liðinn

Framhaldsnámskeið (EMT-A) Lota I (LOL, Lyfjafræði og Öndun) Námskeið 9, Sandgerði
 
Umsjónarmaður: Jón Garðar Viðarsson Tengiliður: Ingimar Eydal
Tímabil: 01/09/2018 - 28/10/2018
Skráningu lýkur: 11/08/2018
Verð: 95000 kr.
Lengd í klst.: 64 klst.
Lágmarksfjöldi: 12 manns
 
Staðsetning:

Bóklegt efni í streymi og verkleg lota í Sandgerði dagana 26.-28. október 2018.  Auk þess fylgir lotunni 24 tíma starfsþjálfun á sjúkrabíl með bráðatækni.
 
Markmið: Að nemandi auki við þekkingu sína sem sjúkraflutningamaður og verði betur í stakk búinn til að sinna neyðarflutningum. Áfanginn inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu í lyfjafræði, lífeðlisfræði öndunar og öndunarhjálp.
 
Viðfangsefni:

Grundvallaratriði lyfjagjafar, sé meðvitaður um nauðsynlegar varúðarráðstafanir við lyfjagjafir, þekki ábendingar fyrir lyfjagjöf, þekki búnað sem þarf til lyfjagjafar, kunni skil á réttri tækni við lyfjagjöf, þekki stærðfræðilegar skilgreiningar, kunni lyfjaútreikninga, þekki sex rétt atriði við lyfjagjöf, frásog vegna lyfjagjafar, aðgengi inn í blóðrás, almenn lyfjagjöf, vökvasett, frágang á óhreinum og oddhvössum áhöldum. 

Helstu lyf sem notuð eru af sjúkraflutningamönnum með framhaldsmenntun, beta áhrif, alpha áhrif, frábendingar, ábendingar, aukaverkanir, skammtastærðir, verkun, hámarksskammta,vökva, uppsetningu IO, fimm rétta.

Að nemandi þekki líffærafræði öndunarvegar, átti sig á mikilvægi þess að tryggja öndunarveg.
Þekki og kunni að nota öndunarbúnað, geti metið sjúkling í andnauð, hvernig soga á úr öndunarvegi, bregðist við sérstökum tilfellum, , kunni útreikninga á súrefni, þekki rétta súrefnismeðferð, kunni rétt handtök við aðskotahlut í öndunarvegi,  þekki og kunni að nota CPAP, Capnografia, þekki líffæra og lífeðlisfræði öndunar og öndunarvegar, þekki Astma og COPD, þekki áhrif hjartabilunar á öndun, þekki öndunaraðstoð sjúklinga með höfuðáverka.
Að nemandi þekki 
öndunarvegavandamál, handbrögð án hjálpartækja og ábendingar og frábendingar þeirra, ávinning og ókosti, barkakýlisgrímu, LTS túbu, aðstoð við Endotraceal túbu
 
Inntökuskilyrði:

Að nemandi hafi lokið grunnnámskeið í sjúkraflutningum EMT eða EMT-Basic.
 
Námsmat: Námskeiðinu lýkur með bóklegu og verklegu prófi.  Einnig er metin áhugi og virkni nemanda allt námskeiðið.  Lágmarkseinkunn er 75% úr öllum hlutum námsins og einkunn í verklegu er gefin sem staðinn eða fallinn.
 
Námsefni:

Advanced EMT: A Clinical Reasoning Approach, 2nd Edition

Melissa Alexander, Lake Superior State University, School of Criminal Justice, Fire Science, and EMS

Richard Belle, Acadian Ambulance/National EMS Academy Lafayette, Louisiana

©2017  | Pearson  

Bókin fæst í Bóksölu stúdenta eða hægt að panta hana erlendis frá.

 
Skráningartími:

Síðasti skráningar dagur er sunnudagurinn 5. ágúst 2018
 
Annað:

Rekstraraðilar sitja fyrir með pláss á námskeiðið.


Skráðu þig inn

Notandanafn:
Lykilorð:
Hvernig verð ég sjúkraflutningamaður?

Mynd augnabliksins

forsida-21-47d4f2be79805s.jpg.png

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf