Sjúkraflutningaskólinn
		<description>Sjúkraflutningaskólinn</description>
		<language>is</language>
Útskrift Sjúkraflutningaskólans í dag
    <description>Í dag, föstudaginn 18. maí, fer fram útskrift hjá Sjúkraflutningaskólanum. Útskrifaðir verða
85 nemendur þar af 69 sem sjúkraflutningamenn eftir að hafa lokið grunnnámskeiði í sjúkraflutningum auk þess sem 6
hafa lokið Neyðarflutninganámi og 15 Vettvangshjálp.   
Athöfnin hefst klukkan 17:00 og fer hún fram í kennslustofunni í K1 á Sjúkrahúsinu á
Akureyri og eru allir velkomnir svo lengi sem húsrúm leyfir.
Námskeið í sérhæfðri endurlífgun II (ALS)
    <description>Námskeið í sérhæfðri endurlífgun II (ALS) var haldið á Sjúkrahúsinu á Akureyri dagana 17. - 18. apríl. Alls
sóttu 17 nemendur námskeiðið þar á meðal læknar, hjúkrunarfræðingar og sjúkraflutningamenn. Almenn ánægja var með
námskeiðið, enn þar sem tvær hæðir eru á milli kennslustofa sjúkrahússins má segja að bæði
þátttakendur og leiðbeinendur hafi ekki aðeins verið í heilaleikfimi þessa daga heldur líka fengið tveggja daga tröppuþrek í
bónus.
Leiðbeinendur á námskeiðinu voru Björn Gunnarsson, Helga Magnúsdóttir, Jón G. Knutsen, Oddur Ólafsson, Styrmir Sigurðsson,
Sveinbjörn Dúason og Valur Freyr Halldórsson. Sérlegur aðstoðarmaður/kona var Elma Rún Ingvarsdóttir. Námskeiðsstjóri Hrafnhildur
Lilja Jónsdóttir
Grunnnámskeiði í sjúkraflutningum lokið
    <description>Um síðustu helgi lauk einu fjölmennasta grunnnámskeiði sem haldið hefur verið hjá skólanum. Verklegar lotur og próf fóru fram
á fjórum stöðum á landinu Akureyri, Ísafirði, Selfoss og Reykjanesbæ. Á sama tíma fór fram
vettvangshjálparnámskeið í Borgarfirði eystra og má því segja að nóg hafi verið um að vera hjá skólanum þessa
helgi, þar sem yfir sextíu nemendur tóku þátt, ásamt fjölda leiðbeinenda.
Skólinn þakkar nemendum og leiðbeinendum samstarfið á þessum námskeiðum og ekki síst umsjónarmönnum bæði
námskeiða og búnaðar skólans sem hafði í mörg horn að líta :)
Vettvangshjálparnámskeið í Borgarfirði eystra
    <description>Síðustu helgi lauk námskeiði í Vettvangshjálp á Borgarfirði eystra. Alls tóku fjórtán manns þátt í
námskeiði sem var með því sniði að fyrirlestrar fóru fram í gegnum fjarfundarbúnað og síðan var verkleg lota haldin í
Borgarfirðinum.
Kennarar voru: Jón G. Knutsen, Björgvin Árnason og Friðrik Jónsson.
Árskýrsla sjúkraflutningaskólans
    <description>Svipaður fjöldi námskeiða fór fram árið 2011 samanborið við árið 2010 en haldin voru 27 námskeið með samtals 322 nemendum, af
þeim voru 133 konur (41%) og 189 karlar (59%). Námskeiðin fóru fram á öllu landinu, ýmist í heimabyggð nemenda eða með notkun streymis.
Formleg útskrift nemenda fór fram á FSA 14. maí 2011 en þá útskrifuðust 47 nemendur; 39 sjúkraflutningamenn og 8 neyðarflutningamenn.
Sjá má árskýrsluna í heild ásamt myndritum um skiptingu nemenda eftir kyni og
stöðu auk skiptingu námskeiða hér.