Almennt - þriðjudagur 03.maí 2011 - Hildigunnur Svavarsdóttir - Lestrar 19
Nú ættu allir sjúkraflutningamenn (sem hafa lokið námi fyrir
árslok 2010) að hafa fengið sent kynningarbréf og tölvupóst varðandi rannsókn tengt notkun koktúbu. Tilgangur þess verkefnis er að m.a.
að kanna hversu algengt það er að sjúkraflutningamenn noti koktúbu, hver undirbúningurinn var o.fl. Ágóði og mikilvægi
þessarar rannsóknar er augljós, ekki síst fyrir Sjúkraflutningaskólann sem kennir notkun koktúbu. Þeir sem að rannsókninni standa
hvetja ykkur til þess að taka þátt í könnuninni - ef einhverjar spurningar eru þá hafið samband við skólastjóra
Sjúkraflutningaskólann, Hildigunni Svavarsdóttur (hildig@fsa.is)