Námskeið í sérhæfðri endurlífgun I verða haldin á Sjúkrahúsinu á Akureyri, 30. mars, 6. apríl og 12. apríl.
Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk (lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraflutningamenn) í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp, beita grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoði öndunarhjálp og rafstuði þar til sérhæfð aðstoð berst. Tilgangurinn með þeirri þjálfun felst í því að gera starfsmanninn færari um að taka þátt í endurlífgun sem meðlimur teymisins.
Námskeiðin eru tilvalin sem endurmenntunarnámskeið fyrir sjúkraflutningamenn.
Námskeiðið er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins sem út komu í október 2010 og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir orsakir og forvarnir hjartastopps og vinnuferla við endurlífgun. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp og teymisvinnu í endurlífgun. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans.


