Almennt - þriðjudagur 27.september 2011 - Hrafnhildur - Lestrar 41
Minni á að umsóknarfrestur á neyðarflutninganámskeiðið sem hefjast á 14. nóvember er til 16. október n.k.
Námskeiðið inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu. Námskeiðið inniheldur m.a. kynningu á starfi neyðarflutningamanna, líffæra-, lífeðlis- og lyfjafræði. Öndunaraðstoð, lyflæknisfræði s.s. bráða öndunar- og hjartasjúkdóma, sykursýki, ofnæmi, heila- og taugavandamál og kvensjúkdóma. Ennfremur er farið í mismunandi áverka, áverkaferli, blæðingar, lost og bruna. Farið er yfir sérstakar aðstæður s.s. bráðatilfelli tengd meðgöngu og fæðingu, ungbörn, börn og aldraða.


