Um er að ræða grunnnámskeið í sjúkraflutningum (EMT-B27) sem fer fram með notkun streymis (streaming = í gegnum internetið). Miðað er
við að nemandi horfi að jafnaði á 12-16 bóklega kennslustundir á viku, á tímabilinu 21. febrúar til 14. apríl 2012.
Fyrirlestrar fara fram á FSA og verða þeir sendir út á internetinu. Nemendur utan Akureyrar geta séð og heyrt fyrirlestra hvar sem þeir eru staddir svo framarlega sem þeir hafa tölvu með hljóðkorti og góða nettengingu. Hægt verður að fylgjast með kennslustundinni á meðan hún fer fram eða skoða fyrirlesturinn seinna.
Nauðsynlegt er að nemendur horfi á fyrirlestra fyrir verklegar lotur. Tímalengd og skipulag verklegra æfinga miðast við að nemendur horfi á alla fyrirlestra fyrir verklegar lotur. En verklegar lotur eru þrjár á námskeiðinu.


