
Fyrsta örnámskeiðið í öndunaraðstoð var haldið í byrjun nóvember á svæfingardeild FSA. Námskeiðið er sett saman af Birni Gunnarssyni svæfingarlækni í samvinnu við Sjúkraflutningaskólann. Námskeiðið er hugsað fyrir Sjúkraflutningamenn, hjúkrunarfræðinga og lækna sem vilja auka færni sína og fá meiri æfingu í öndunaraðstoð. En á því er meðal annars farið í öndunaraðstoð með maska og belg, LMA, LTS, barkaþræðingar, helstu lyf og grunnatriði í öndunarvélameðferð.
Nemendur á þessu fyrsta námskeiði voru Friðrik Jónsson og Björgvin Árnason neyðarflutningamenn hjá Heilbrigðisstofnun Þingeyinga Húsavík en upptökusvæði þeirra er stórt og oft langir flutningar. Þeir voru mjög ánægðir með námskeiðið og sagði Friðrik að það væri ljóst að þessir tveir dagar undir handleiðslu starfsfólks svæfingardeildar FSA veitti þeim öryggi við að tryggja öndunarveg og þekkja betur verklag og framkvæmd svæfingar. En það væri klárlegar eitthvað sem sjúkraflutningsmenn sem flytja sjúklinga langar vegalengdir ættu að kunna því nauðsynlegt að hafa þessa hluti á hreinu.


