Starfsemi skólans var í stöðugri sókn fram til ársins 2009. Hinsvegar hefur verið töluverður samdráttur í starfseminni undanfarin þrjú ár og hefur námskeiðum og fjölda þátttakenda fækkað um helming á því tímabili. Enn er haldið í sama fjöldi grunn- og neyðarflutninganámskeiða en mest er fækkunin tengt endurmenntunarnámskeiðum. Mikilvægt er að tryggja stöðuga endurmenntun fyrir þennan hóp fagmanna því eins og vitað er vegna sérstöðu landsins að tryggja reglulega og samhæfða endurmenntun. Vinna þarf markvisst að því að efla nám sjúkraflutningamanna og halda áfram þar sem frá var horfið varðandi vinnu með þær tillögur sem lagðar voru fram árið 2008 og snúa að breytingum á námi í sjúkraflutningum. Ljóst er að þörfin er til staðar fyrir menntunina og er jöfn eftirspurn eftir námskeiðum auk þess sem reglulega bætast við ný og fjölbreytileg verkefni sem falla undir starfsemi Sjúkraflutningaskólans. Hér má sjá skýrslu um starfsemi skólans árið 2010 – 2011.
Flýtilyklar
Starfsemi Sjúkraflutningaskólans árið 2010 – 2011
Almennt - fimmtudagur 11.ágúst 2011 - Hrafnhildur - Lestrar 43
Á næstunni
Engir viðburðir á næstunni
Könnun
Engin könnun skráð


