Sjúkraflutningaskólinn

Útskrift Sjúkraflutningaskólans Laugardaginn 14. maí 2011 fór útskrift nemenda Sjúkraflutningaskólans fram við hátíðlega athöfn á FSA. Að þessu

Útskrift Sjúkraflutningaskólans

Hluti útskriftarnema
Hluti útskriftarnema

Laugardaginn 14. maí 2011 fór útskrift nemenda Sjúkraflutningaskólans fram við hátíðlega athöfn á FSA. Að þessu sinni útskrifuðust 48 sem lokið höfðu almennu námskeiði í sjúkraflutningum og neyðarflutningum.

Í ræðu skólastjóra, var m.a. rakin starfsemi skólans á síðastliðnu skólaári og þar kom fram að starfsemin skólans var svipuð og árið áður en um 280 nemendur sóttur námskeið á vegum Sjúkraflutningaskólans veturinn 2010-2011. Námskeiðin voru haldin um allt land auk þess sem lengri námskeiðin (grunn- og neyðarflutninganámskeið) fóru fram með notkun streymis en í því felst að fyrirlestur er tekinn upp og sendur út á vefinn þannig að nemendur geta séð og heyrt fyrirlestra hvar og hvenær sem er. Það er samdóma álit að þessi tækni henti vel fyrir þá sem búa í dreifbýli eða sækja námið samhliða starfi. Skólastjóri kom einnig inn á mikilvægi þess að halda áfram að stuðla að lengingu á grunnnámi og efla frekara nám sjúkraflutningamanna en illa hefur gengið hingað til að koma því máli í réttan farveg. Allt er þetta þó á réttri leið.

Eftir afhendingu skírteina var öllum útskriftarnemendum óskað velgengi í starfi og jafnframt minntir á mikilvægi þess að stunda endur- og símenntun. Skólastjóri þakkaði öllum leiðbeinendum og öðrum sem að starfinu hafa komið kærlega fyrir vel unnin störf. Einnig fluttu ávörp Björn Gunnarsson, formaður fagráðs Sjúkraflutningaskólans, Gauti Þór Grétarsson, fulltrú LSS, leiðbeinendurnir Sigurjón Valmundarson og Sveinbjörn Dúason og Henning Þór Aðalmundsson, nýútskrifaður neyðarflutningamaður. Tónlistarmaðurinn, Hermann Arason flutti söng- og gítaratriði í upphafi athafnar. 

 

Myndir af útskriftinni koma inná myndavefinn á næstu dögum.


Skráðu þig inn

Notandanafn:
Lykilorð:
Fjarfundir

Á döfinni

Mynd augnabliksins

forsida-28-491157cd952eds.jpg.png

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf