Fara í efni
Til baka
30
sep
EPILS (sérhæfð endurlífgun barna 1)
Tímabil: 30/09/2021
Skráningu líkur: 16/08/2021
Lengd: 8 kennslustundir
Staðsetning: Tunguháls, slökkvistöð
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennari:
Kristján Sigfússon
Umsjónarmaður: Kristján Sigfússon
Markmið: Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp, beita grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoði öndunarhjálp og rafstuði þar til sérhæfð aðstoð berst. Tilgangurinn með þeirri þjálfun felst í því að gera starfsmanninn færari um að taka þátt í endurlífgun sem meðlimur teymisins.
 
Viðfangsefni: Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurlífgunarráð Íslands og Evrópska Endurlífgunarráðsins. Það er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir orsakir og forvarnir hjartastopps og vinnuferla við endurlífgun. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp og teymisvinnu í endurlífgun. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans.
 
Inntökuskilyrði: Heilbrigðisstarfsfólk sem kemur sjaldan að endurlífgun en þarf samt að geta brugðist við og tekið þátt í endurlífgun t.d. sjúkra- og neyðarflutningamenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræði- og læknanemar.
 
Námsmat: Símat á virkni og getu nemenda.
 
Námsefni: Bók:
European Resuscitation Council (2021). ERC Immediate Life Support. October 2021(5. útg) Bókin er innifalin á PDF formi.
Verð námskeiðs: 60.000,-