Fara í efni
Til baka
22
apr
Framhaldsnámskeið EMT-A Lota IV (Vettvangur og sérstök vandamál)
Tímabil: 22/04/2022 - 26/04/2022
Skráningu líkur: 08/11/2021
Lengd: 80 kennslustundir
Staðsetning: Sandgerði, slökkvistöð
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennarar:
Anton Berg Carrasco, Hermann Marinó Maggýjarson
Verð: 140.000 kr.
Umsjónarmaður: Hermann Marinó Maggýjarson

Framhaldsnámskeið Lota 4.  Verkleg lota verður 22.-26. apríl í húsnæði BS í Sandgerði.
Hver lota í framhaldsnáminu kostar 140 þúsund kr., lokafærnimat kostar 12 þúsund kr. Staðfestingargjald kr. 30. þúsund er rukkað ca. mánuði áður en hver verkleg lota byrjar. Það fæst ekki endurgreitt. Eftirstöðvar eru svo rukkaðar eftir að verklegri lotu lýkur.

 

Markmið: Auk þess sem getur hér að neðan í "Viðfangsefni" er markmiðið að draga saman það sem hefur verið farið í í fyrri lotum þannig að nemandi nýti námsefni í fyrri lotum til stuðnings vettvangsvinnu og þeim sérstöku aðstæðum sem mæta sjúkraflutningamönnum.
 
Viðfangsefni: Upplýsingaöflun skýrslugerð og rýni, Hópslys, SÁBF og aðrir viðbragðsaðilar í bráðaþjónutu, Áfallahjálp og félagastuðningur, Fagmennska, teymisvinna og samskipti, Sértækir vinnuferlar, Fíkniefni, Glæpavettvangr og ransóknarhagsmunir, Langveikir sjúklingar, Andlát og sjálfsvíg, Geðsjúkdómar, Félagsleg vandamál, Öldrun og öldrunartengd vandamál.  Samandregið það sem áður er lært í Lotum 1-3.
 
Inntökuskilyrði: Að umsækjandi hafi lokið Grunnnámi sjúkraflutninga EMT-B eða Kjarnanáms EMT. Ennfremur að hafa lokið fyrri lotum í EMT-námi ásamt starfsþjálfun.
 
Námsmat: Lotu IV lýkur með prófi, skriflegu og verklegu. Krafist er 75% heildarárangurs í skriflegu prófi en staðið/fallið í verklegu. Farið er fram á skyldumætingu í fyrirlestra og verklegar æfingar (verklegar lotur).
 
Námsefni:
 
Kennslubók:
Advanced EMT: A Clinical Reasoning Approach, 2nd Edition
Melissa Alexander, Lake Superior State University, School of Criminal Justice, Fire Science, and EMS
Richard Belle, Acadian Ambulance/National EMS Academy Lafayette, Louisiana
©2017 | Pearson