Fara í efni
Til baka
25
nóv
Lokafærnimat fyrir EMTA
Tímabil: 25/11/2020
Skráningu líkur: 23/11/2020
Lengd: 4 kennslustundir
Staðsetning: Sandgerði, slökkvistöð
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennarar:
Eyþór Rúnar Þórarinsson, Kristján Sigfússon
Umsjónarmaður: Kristján Sigfússon

Umsjónarmaður raðar inn á tímasetningar.

Markmið: Færnimatinu er ætlað að prófa nemendur í meginmarkmiðum EMT-A námsins. Það fer fram að loknum öllum lotum í náminu. Standist nemandi færnimatið og hafi hann skilað öllum starfþjálfunarskýrslum EMT-A námsins og fengið þær viðurkenndar, telst hann hafa lokið framhaldsnámi í Sjúkraflutningum EMT-Advanced og hefur rétt til að kalla sig Neyðarflutningamann og leiða vinnu sjúkraflutningamanna í F1 og F2 tilfellum.
 
Viðfangsefni: Verklegt og munnlegt próf úr helstu þáttum EMT-A námsins.
 
Inntökuskilyrði: Hafa lokið öllum lotum í EMT-A námi og staðist próf í þeim. Starfsþjálfun sé lokið.
 
Námsmat: Einkunn er gefin sem staðið eða fallið. Nemandi hefur rétt á einni endurtekningu í verklegri stöð á prófadegi og annarri endurtekningu á næsta skipulögðum prófadegi.