Fara í efni
Til baka
8
okt
Grunnnámskeið í sjúkraflutningum streymisnámskeið EMT Reykjavík EMT-56 Haust 2021
Tímabil: 08/10/2021 - 05/12/2021
Skráningu líkur: 16/08/2021
Lengd: 260 kennslustundir
Staðsetning: Tunguháls, slökkvistöð
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennari:
Kristján Sigfússon
Verð: 350.000 kr.
Umsjónarmaður: Kristján Sigfússon

     

 

Bóklegt nám í fjarnámi gegnum Moodle námskerfi Sjúkraflutningaskólans á netinu. https://moodle.ems.is. Verklegar lotur verða í slökkvistöð SHS í Tunguhálsi 13 (neðri hæð).
Verklegar lotur verða því sem hér segir:
Upphafslota 9.-10. október 2021, kynning og fyrstu skref

Verkleg lota 1. 22.-24. okt 2021
Verkleg lota 2. 5.-7. nóv 2021
Verkleg lota 3. 19.-21. nóv 2021
Verkleg lota 4 (sem jafnframt er prófahelgi) 3.-5. des 2021.

Skyldumæting er í allar verklegar lotur!

 
Markmið: Námskeiðið er í grunninn byggt á viðurkenndum bandarískum EMT staðli (Emergency Medical Technician) og inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu en er þó staðfært miðað við íslenskar aðstæður. Það er upphafið á heildarnámi sjúkraflutningamanna sem áætlað er að taki 3-4 ár.
 
Viðfangsefni: Í fyrirlestrunum er m.a. fjallað um starf sjúkraflutningamanna, öryggi, sóttvarnir og heilsuvernd. líffæra- og lífeðlisfræði, lífsmörk, öndunarhjálp, endurlífgun, skoðun og mat, almenna flutningstækni, skráningu og skýrslugerð, fæðingarhjálp, meðhöndlun sára og áverka svo eitthvað sé nefnt. Nemendur fá einnig viðeigandi verklega þjálfun í ofangreindum kennsluþáttum. Nemendur þurfa að ljúka 48 klukkustunda starfsþjálfun hjá viðurkenndum rekstraraðila í sjúkraflutningum sem uppfylla kröfur um starfsþjálfun, auk 8 klukkustunda starfsþjálfunar á Bráðamóttöku og 4 tíma starfskynningu hjá Neyðarlínu.
 
Inntökuskilyrði:

Umsækjandi skal hafa lokið að lágmarki 60 eininga (100 f-einingar) námi í framhaldsskóla ( 2 ára nám) eða sambærilegu námi og hafa innan við tveggja ára gamalt skírteini í skyndihjálp, að lágmarki 8 kennslustundir.

Umsækjandi þarf að vera 18 ára á því ári sem nám er hafið. Rétt er að geta þess að flestir rekstraraðilar gera kröfu um að sjúkraflutningamenn séu 20 ára.

Ef fleiri sækja um en sæti leyfa er raðað eftir menntun og reynslu umsækjenda skv inntökureglum.

Þeir sem eru sendir á vegum rekstraraðila eða hafa meðmæli frá rekstraraðilum hafa forgang á námskeiðið.

 
Námsmat:

Grunnnámskeiðinu lýkur með prófi, bæði bóklegu og verklegu. Krafist er 75% árangurs í skriflegu prófi og nemendur skulu standast verkleg próf. Farið er fram á skyldumætingu í fyrirlestra og verklegar æfingar. Nemendur þurfa einnig að ljúka starfsþjálfun á sjúkrabílum, bráðamótttöku, Hjartagátt og hjá 112 og skila fullnægjandi starfsþjálfunarskýrslum. Að því loknu geta nemendur sótt um löggildingu til að hefja störf sem sjúkraflutningamenn með grunnmenntun.

Athugið að til þess að starfa sem sjúkraflutningamaður þar viðkomandi að hafa fengið löggildingu sem sjúkraflutningamaður.

 
Námsefni:
 

Emergency Care, 13/E

Limmer, O'Keefe, Grant, Murray, Bergeron & Dickinson

ISBN-10: 0134024559 • ISBN-13: 9780134024554

©2016

Athugið að kennslubókin eru ekki innifalin á námskeiðsverði en hægt að panta bæði á erlendum bókasölum en einnig hjá Bóksölu studenta. Panta þarf bókina með fyrirvara.

ISBN númerið er einskonar kennitala bókarinnar til að tryggja að um sé að ræða rétta bók. Kennslubókin hefur tvö ISBN númer, bæði í flokki 10 og 13 en þetta er sama bókin.

 
Skráningartími:

Umsóknarfrestur er til og með sunnudagsins 15. ágúst. Væntanlegir nemendur verða að skrá sig á vef skólans www.ems.is og senda gögn til staðfestingar inntökuskilyrðunum, staðfest afrit af einingafjölda frá viðkomandi skóla (lágmark 60 einingar) og gilt skyndihjálparskírteini eða sambærilegt.  Gögn skal senda á PDF formi fyrir lok skráningarfrests á netfangið ems@ems.is

Eftir að gögn hafa borist skólastjóra fer inntökunefnd í gegnum umsóknir. Þegar niðurstöður hennar liggja fyrir fá nemendur sem komast í námið upplýsingar um greiðslu staðfestingargjalds kr. 50.000. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt.