Fara í efni
Til baka
28
sep
Vettvangshjálp (First Responder).
Tímabil: 28/09/2021 - 30/09/2021
Skráningu líkur: 12/09/2021
Lengd: 42 kennslustundir
Staðsetning: Sjúkrahúsið á Akureyri
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennari:
Friðrik Jónsson
Umsjónarmaður: Friðrik Jónsson

Akureyri Lögreglunemar SN1 Námskeið 2

 

 

Markmið: Að nemendur verði færir um að veita fyrstu bráðaþjónustu áður en sjúkraflutningamenn koma á staðinn og unnið með sjúkraflutningamönnum á vettvangi.
 
Viðfangsefni: Námskeiðið er byggt á viðurkenndum bandarískum staðli og staðfært að íslenskum aðstæðum. Inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu. Í kennslunni er m.a. fjallað um öryggi og sóttvarnir, líffæra- og lífeðlisfræði, lífsmörk, öndunarhjálp, endurlífgun, skoðun og mat, meðhöndlun áverka, björgun úr bílflökum og hópslys svo eitthvað sé nefnt.
 
Inntökuskilyrði: Námskeiðið er fyrir einstaklinga sem eru líklegir til að verða fyrstir á vettvang slysa s.s. lögreglu-, slökkviliðs- og björgunarsveitarmenn eða aðrir sem starfa sinna vegna þurfa að geta sinnt slösuðum eða bráðveikum.
 
Námsmat: Námskeiðinu lýkur með prófi, bæði bóklegu og verklegu. Krafist er 75% árangurs úr námsefninu auk skyldumætingar í fyrirlestra og verklegar æfingar.
 
Námsefni:
Bók:
American Academy of Orthopaedic Surgeons (AAOS), (2018). Emergency medical responder, 6. útgáfa.J ones & Bartlett Learning.
Fyrirlestrar í streymi: (lykilorð verður sent í tölvupósti, hafið samband við skólastjóra ef hann skilar sér ekki)