Fara í efni
Til baka
26
apr
Framhaldsnámskeið EMT-A Lota III, hjarta og bráðasjúkdómar
Tímabil: 26/04/2024 - 30/04/2024
Skráningu líkur: 15/01/2024
Lengd: 110 kennslustundir
Staðsetning: Slökkvistöðin á Akureyri við Árstíg
Hámarksfjöldi: 14 manns
Kennari:
Kristján Sigfússon
Umsjónarmaður: Kristján Sigfússon

Lota 3 í AEMT.  Í tengslum við lotuna verða haldin ILS 24. apríl og EPILS 25. apríl og þarf að skrá sig sérstaklega á þau.

STAÐSETNING OG TILHÖGUN NÁMSINS

Bóklegi hluti námsins er í streymi á netinu. Verkleg lota verður á Akureyri, slökkvistöðinni. Til að hefja nám í þessum áfanga þurfa nemendur að vera búnir að ljúka bæði ILS (sérhæfð endurlífgun 1) og EPILS (sérhæfð endurlífgun barna 1). Boðið verður upp á bæði þessi námskeið í tengslum við lotuna. Í verklegu er einn dagur í bráðasjúkdómum, einn dagur í bráðatilvikum barna, og tveir dagar í hjartavandamálum og svo einn prófadagur.

Nemendur fá aðgang að moodle kerfi Sjúkraflutningaskólans sem opnar mánuði fyrir upphaf verklegu lotunnar. Skilyrði fyrir því að koma á verklegu lotuna er að vera búin að fara yfir og tileinka sér bóklega hlutann sem innheldur fyrirlestra og verkefni.

Lotunni fylgir svo 24 tíma starfsþjálfun á sjúkrabíl með bráðatækni, 4 tímar á Hjartagátt. 8 tímar á slysadeild með áherslu á hjartatengd vandamál, 8 tímar á bráðadeild barna og 8 tímar á öldrunardeild.

MARKMIÐ

Að gera nemendur færa um að meta ástand mikið veikra og slasaðra sjúklinga, taka ákvörðun um og beita allri nauðsynlegri og viðeigandi bráðameðferð. Að gera nemendur færa um að leiða teymi sjúkraflutningamanna í bráðatilfellum og geta beitt þeim inngripum sem ætlast er til að námi loknu.

VIÐFANGSEFNI

Sjúkdómar og sjúkdómafræði.

Hluti 5 í kennslubók. Nemendur lesa kafla 20-32 í bók og mega reikna með prófspurningum upp úr því efni. Samtals er reiknað með u.þ.b 27 klst í bóklegt og verklegt (þessi tími er fyrir utan starfsnám eftir lotu III)

Meðal efnis: Öndunarfæravandamál (upprifjun úr lotu I) taugakerfisvandamál, Innkirtlavandamál, kviðarholssjúkdómar, ofnæmissjúkdómar, þvagfærasjúkdómar og þvagfæratengd vandamál, sýkingar og sýkingalost, sjúkdómar í augum,hálsi, nefi og eyrum, geðrænir sjúkdómar, eitranir.

Ath, farið verður yfir bráð hjartavandamál í kaflanum „Bráð hjartavandamál“ í umsjón Kristjáns Sigfússonar) sjá neðar.

Sjúkdómsvandamál tengt börnum.

Section 7 í bók. Nemendur eiga að lesa kafla 44 í bók og mega reikna með prófspurningum upp úr því efni. Samtals er reiknað með u.þ.b 16 klst í bóklegt og verklegt ( þessi tími er fyrir utan starfsnám eftir lotu III) Reiknað er með að nemendur taki EPILS endurlífgunarnámskeið ERC (8 klst námskeið). Þar sem munur er á stöðluðum leiðbeiningum í endurlífgun annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Evrópu er ekki víst að efni í kennslubókinni sem tengist endurlífgun barna samræmist kennsluefni námskeiðsins.

Þess í stað mun verða notast við kennsluefni frá Evrópska Endurlífgunarráðinu.

Bráð hjartavandamál

Hluti 21 í kennslubók og einnig verður hluti af hluti 17 notaður. Þar sem munur er á stöðluðum leiðbeiningum í endurlífgun annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Evrópu er ekki víst að efni í kennslubókinni sem tengist endurlífgun samræmist kennsluefni námskeiðsins. Þess í stað mun verða notast við kennsluefni frá Evrópska Endurlífgunarráðinu.