Fara í efni

Námið

Til að hefja nám í sjúkraflutningum þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði:

Vera 18 ára á því ári sem nám er hafið.
Hafa lokið amk. 100 Framhaldsskólaeiningum (60 gamlar einingar) úr viðurkenndum framhaldsskóla.
Hafa innan við tveggja ára gamalt skírteini í skyndihjálp eða sambærilegt (EMR, WFR, Fyrsta hjálp björgunarsveita,  próf í hjúkrunarfræði, sjúkraliði eða læknismenntun).
Ekki er krafa um meirapróf (leigubílaréttindi) til að hefja nám í sjúkraflutningaskólanum.

Grunnnám í sjúkraflutningum er 260 tíma nám sem tekur nú um 5-7 vikur og lýkur með bóklegu og verklegu prófi.

Eftir það er hægt að sækja um löggildingu sem sjúkraflutningamaður til að mega hefja störf en til viðbótar er ætlast til að nemendur ljúki 410 klst framhaldsnámi á þremur árum eftir að grunnámi lýkur til að ljúka fullnaðarnámi.

Grunnnám fer fram með rafrænni miðlun náms á netinu auk þess sem nemendur mæta í fimm staðarlotur (skyldumæting).

Boðið er upp á staðarlotur á Akureyri, Reykjavík, Sandgerði og Reyðarfirði ef lágmarksfjöldi nemenda býður upp á það. Námið er samtals 260 tímar, þar af eru 104 bóklegir tímar og 96 verklegir tímar, auk 60 tíma í starfsnámi.

Námið getur hentað fyrir þá sem eru í vinnu eða námi en hins vegar er rétt að benda á að um mikið efni er að ræða, bæði efni sem þarf að horfa á fyrir hverja lotu og eins lestur kennslubókar og tileinkun efnis. Verklegar lotur eru yfirleitt frá fös-sun, kennt frá 8-17 alla daga. Skyldumæting er í allar verklegar lotur!

Starfsnámið, 60 tímar, (starfsþjálfun) eru 48 tímar á sjúkrabíl, 8 tímar á bráðamóttöku auk 4 tíma hjá Neyðarlínu (112).

Boðið er upp á grunnnámskeiðin í febrúar-apríl og í okt-nóv ár hvert og stendur í 5-7 vikur (eftir því hvort um staðarnám eða streymisnám er að ræða).

Opnað er fyrir umsóknir (sjá undir námskeið á valstiku) 1. október og rennur umsóknarfrestur út 15. nóvember fyrir nám á vorönn en 1. júlí og opið til 15. ágúst fyrir nám á haustönn.

Grunnnámskeiðið kostar 390 þúsund (Haust 2023) og hver lota í Framhaldsnáminu kostar 140þúsund (fjórar lotur).

Framhaldsnámið tekur mið af  EMT-Advanced staðal frá USA. Því er skipt í 4 hluta og hægt að taka þá á þeim hraða sem hentar hverjum og einum. Aðeins er mismunandi tímafjöldi á bakvið hverja lotu en hver hluti er ca. 60-120 tímar. Taka þarf inntökupróf í framhaldsnámið og því lýkur með lokafærnimati úr öllum þáttum námsins.

Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 463-0853 eða í netfangið ie1214@sak.is

Hér er stutt myndband um hvernig þú skráir þig á námskeið.