Sjúkrahúsið á Akureyri stendur fyrir námskeiðinu en okkur býðst að senda nemendur á það. Skilyrðið er að viðkomandi hafi lokið framhaldsnámskeiði í sjúkraflutningum (EMT-I eða EMT-A) og hafi nokkurra ára reynslu sem sjúkraflutningamaður.
Markmið: Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp og að þeir séu færir um að veita sérhæfða endurlífgun og stjórna aðgerðum á vettvangi. Markmiðið er jafnframt að undirbúa reynda meðlimi endurlífgunarteyma í að meðhöndla sjúklinginn þar til flutningur á sérhæfða deild / sjúkrahús er mögulegur |
|||||
Viðfangsefni: Námskeiðið er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Farið er í orsakir og forvarnir hjartastopps, bráða hjartasjúkdóma, takttruflanir, rafmeðferð, vinnuferla við endurlífgun, öndunarhjálp og endurlífgun við sérstakar aðstæður. Mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar og þátttöku nemandans. |
|||||
Forkröfur: Námskeiðið er fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga, bráðatækna og neyðarflutingamenn með mjög mikla reynslu. |
|||||
Námsmat: |
|||||
Námsefni: |
|||||
Skráningartími: Í ljósi mikils undirbúnings á þessi námskeið þarf góðan fyrirvara námskeið þar sem þátttakendum eru send kennslugögn a.m.k. fjórum vikum fyrir áætlað námskeið. |
|||||
|