Til baka
17
sep
EPILS (sérhæfð endurlífgun barna 1)
Tímabil:
17/09/2022
Skráningu líkur:
15/08/2022
Lengd:
8 kennslustundir
Staðsetning:
Sjúkrahúsið á Akureyri
Hámarksfjöldi:
12 manns
Kennari:
Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir
Verð:
45000 kr.
Umsjónarmaður:
Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir
EPILS (sérhæfð endurlífgun barna 1) námskeið í tengslum við Lotu 3 í framhaldsnámi sjúkraflutninga á Akureyri í haust. Dagssetning er laugardagurinn 17. september. Athugið að námskeið er einnig opið öðrum.
Markmið: | Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp, beita grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoði öndunarhjálp og rafstuði þar til sérhæfð aðstoð berst. Tilgangurinn með þeirri þjálfun felst í því að gera starfsmanninn færari um að taka þátt í endurlífgun sem meðlimur teymisins. | ||
Viðfangsefni: | Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurlífgunarráð Íslands og Evrópska Endurlífgunarráðsins. Það er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir orsakir og forvarnir hjartastopps og vinnuferla við endurlífgun. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp og teymisvinnu í endurlífgun. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans. | ||
Inntökuskilyrði: | Heilbrigðisstarfsfólk sem kemur sjaldan að endurlífgun en þarf samt að geta brugðist við og tekið þátt í endurlífgun t.d. sjúkra- og neyðarflutningamenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræði- og læknanemar. | ||
Námsmat: | Símat á virkni og getu nemenda. | ||
Námsefni: | Bók:
European Resuscitation Council (2015). ERC Immediate Life Support. October 2015(4. útg) Bókin er innifalin á PDF formi en einnig er hægt að fá hana á pappírsformi ef óskað
|