Fara í efni
Til baka
15
okt
EPILS (sérhæfð endurlífgun barna 1)
Tímabil: 15/10/2023
Skráningu líkur: 20/08/2023
Lengd: 8 kennslustundir
Staðsetning: Þórshöfn
Hámarksfjöldi: 21 manns
Kennarar:
Sigurjón Valmundarson, Sveinbjörn Dúason
Verð: 45.000 kr.
Umsjónarmaður: Sveinbjörn Dúason
Markmið: Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp, beita grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoði öndunarhjálp og rafstuði þar til sérhæfð aðstoð berst. Tilgangurinn með þeirri þjálfun felst í því að gera starfsmanninn færari um að taka þátt í endurlífgun sem meðlimur teymisins.
 
Viðfangsefni: Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurlífgunarráð Íslands og Evrópska Endurlífgunarráðsins. Það er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir orsakir og forvarnir hjartastopps og vinnuferla við endurlífgun. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp og teymisvinnu í endurlífgun. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans.
 
Inntökuskilyrði: Heilbrigðisstarfsfólk sem kemur sjaldan að endurlífgun en þarf samt að geta brugðist við og tekið þátt í endurlífgun t.d. sjúkra- og neyðarflutningamenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræði- og læknanemar.
 
Námsmat: Símat á virkni og getu nemenda.
 
Námsefni: Námsefnið er rafrænt, aðgengilegt á vef ERC þegar skráning hefur verið staðfest. Innifalið í verði námskeiðsins. 
Verð námskeiðs: 60.000,-