Fara í efni
Til baka
20
okt
Sérhæfð endurlífgun barna 2 EPALS
Tímabil: 20/10/2025 - 21/10/2025
Skráningu líkur: 01/09/2025
Lengd: 20 kennslustundir
Staðsetning: Sandgerði, slökkvistöð
Hámarksfjöldi: 18 manns
Kennari:
Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir
Verð: 140.000 kr.
Umsjónarmaður: Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir

EPALS fyrir HSS og BS, aðrir geta sótt um ef þeir nýta ekki öll sæti. Taka fram í umsókn ef þú ert ekki á þeirra vegum.

BRÁÐAMEÐFERÐ OG SÉRHÆFÐ ENDURLÍFGUN BARNA II

Markhópur: Barnalæknar, bráðalæknar, svæfingalæknar, sjúkrahúslæknar (unglæknar), heimilislæknar, bráðatæknar og hjúkrunarfræðingar á barna- , slysa- og gjörgæsludeildum.

Markmið: Að starfsmennirnir séu færir um að veita börnum sérhæfða endurlífgun og stjórna aðgerðum á vettvangi.

Kennsluaðferðir: Sýnikennsla, verklegar æfingar og fyrirlestrar

Lengd: 18-20 klukkustundir.

Endurmenntun: Skírteini gildir í fimm ár og er endurmenntun möguleg með tvennum hætti. Annars vegar að endurtaka heilt námskeið eða taka verklegt próf og krossapróf. Hafi liðið meira en eitt ár frá því að skírteini rann út er mælt með setu á heilu námskeiði. Æskilegt er að hafa stutta upprifjun á vegum vinnustaðarins árlega (2 klukkustundir) þar sem megin áherslan er á verklegar æfingar og samhæfingu aðgerða.

Námsmat: Símat, verklegt og skriflegt próf í lok námskeiðs.

Verð: 140 þúsund. Innifalið kennslubók á PDF, aðgangur að kennsluefni á vefnum og skírteini.