Sérhæfð endurlífgun 1 (ILS) í tengslum við Lotu 3 fyrir SHS í framhaldsnámi sjúkraflutninga AEMT.
Athugið að staðsetning er ekki endanlega ákveðin.
ILS (Immediate Life Support) Sérhæfð endurlífgun 1. Námskeið í samvinnu við Endurlífgunaráð Íslands og Evrópska Endurlífgunarráðið (ERC). 8 tímar ætlað öllu heilbrigðisstarfsfólki.
Verð: 60000 kr.
Lengd í klst.:8 klst
Lágmarksfjöldi:12 manns
Staðsetning:Eftir óskum hverju sinni.
Markmið:Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp, beita grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoði öndunarhjálp og rafstuði þar til sérhæfð aðstoð berst. Tilgangurinn með þeirri þjálfun felst í því að gera starfsmanninn færari um að taka þátt í endurlífgun sem meðlimur teymisins.
Viðfangsefni:Námskeiðið er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir orsakir og forvarnir hjartastopps og vinnuferla við endurlífgun. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp og teymisvinnu í endurlífgun. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans.
Inntökuskilyrði:Heilbrigðisstarfsfólk sem kemur sjaldan að endurlífgun en þarf samt að geta brugðist við og tekið þátt í endurlífgun t.d. löggiltir sjúkraflutningamenn, læknar, hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræði- og læknanemar.
Námsmat:Símat er stöðugt á námskeiðinu.
Námsefni:
European Resuscitation Council (2021). ERC Immediate Life Support. October 2021 (5. utg)
Innifalið í verði námskeiðs er kennslubók á PDF, og viðurkenningarskjal frá evrópska endurlífgunarráðinu (ERC)
Annað: Gert er ráð fyrir að útvegað verði kennsluhúsnæði á staðnum.