Fara í efni
Til baka
16
feb
ALS Sérhæfð endurlífgun 2 (Advanced Life Support) ERC námskeið
Tímabil: 16/02/2022 - 17/02/2022
Skráningu líkur: 01/12/2021
Lengd: 20 kennslustundir
Staðsetning: Sjúkrahúsið á Akureyri
Hámarksfjöldi: 6 manns
Kennari:
Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir
Umsjónarmaður: Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir

Sjúkrahúsið á Akureyri stendur fyrir námskeiðinu en okkur býðst að senda nemendur á það.  Skilyrðið er að viðkomandi hafi lokið framhaldsnámskeiði í sjúkraflutningum (EMT-I eða EMT-A) og hafi nokkurra ára reynslu sem sjúkraflutningamaður.

Markmið: Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp og að þeir séu færir um að veita sérhæfða endurlífgun og stjórna aðgerðum á vettvangi. Markmiðið er jafnframt að undirbúa reynda meðlimi endurlífgunarteyma í að meðhöndla sjúklinginn þar til flutningur á sérhæfða deild / sjúkrahús er mögulegur
 
Viðfangsefni: Námskeiðið er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Farið er í orsakir og forvarnir hjartastopps, bráða hjartasjúkdóma, takttruflanir, rafmeðferð, vinnuferla við endurlífgun, öndunarhjálp og endurlífgun við sérstakar aðstæður. Mikil áhersla er lögð á verklegar æfingar og þátttöku nemandans.
 
Inntökuskilyrði: Námskeiðið er fyrir lækna og hjúkrunarfræðinga, bráðatækna og neyðarflutingamenn með mjög mikla reynslu.
 
Námsmat: Símat er stöðugt á námskeiðinu og ljúka þarf forprófi, krossaprófi og verklegu prófi.
 
Námsefni:
  • Bók
  • European Resuscitation Council (2015). ERC Advanced Life Support. ERC Guidelines 2015 Edition.
  • Nemendur fá kennslubók á PDF formi (rafræna). Athugið að kennslubókin á pappír er ekki innifalin í námskeiðsverði, hægt er kaupa hana sérstaklega á 2000 kr, láta þarf vita með fyrirvara.
 
Skráningartími: Í ljósi mikils undirbúnings á þessi námskeið þarf góðan fyrirvara námskeið þar sem þátttakendum eru send kennslugögn a.m.k. fjórum vikum fyrir áætlað námskeið. 
 
Annað:

Verð námskeiðs er 140 þúsund.

Innifalið í verði námskeiðs er kennslubók, og viðurkenningarskjal frá evrópska endurlífgunarráðinu (ERC).

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Endurlífgunarráð Íslands og Evrópska endurlífgunarráðið.

Staðfestingargjald 30 þúsund verður rukkað við skráningu og er það óendurkræft.