Fara í efni
Til baka
2
apr
Framhaldsnámskeið EMTA Lota III Hjarta- og bráðasjúkdómar
Tímabil: 02/04/2025 - 06/04/2025
Skráningu líkur: 31/12/2024
Lengd: 88 kennslustundir
Staðsetning: Sandgerði, slökkvistöð
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennari:
Kristján Sigfússon
Verð: 160.000 kr.
Umsjónarmaður: Kristján Sigfússon

Það er kominn dagsetning inn. Minni á að ILS og EPILS námskeið eru haldin í tengslum við lotuna, 31 mars og 1 apríl. 

Markmið:
Að gera nemendur færa um að meta ástand mikið veikra og slasaðra sjúklinga, taka ákvörðun um og beita allri nauðsynlegri og viðeigandi bráðameðferð. Að gera nemendur færa um að leiða teymi sjúkraflutningamanna í bráðatilfellum og geta beitt þeim inngripum sem ætlast er til að námi loknu.

Viðfangsefni:
Sjúkdómar og sjúkdómafræði.
Hluti 5 í kennslubók. Nemendur lesa kafla 20-32 í bók og mega reikna með prófspurningum upp úr því efni. Samtals er reiknað með u.þ.b 27 klst í bóklegt og verklegt (þessi tími er fyrir utan starfsnám eftir lotu III)
Meðal efnis: Öndunarfæravandamál (upprifjun úr lotu I) taugakerfisvandamál, Innkirtlavandamál, kviðarholssjúkdómar, ofnæmissjúkdómar, þvagfærasjúkdómar og þvagfæratengd vandamál, sýkingar og sýkingalost, sjúkdómar í augum,hálsi, nefi og eyrum, geðrænir sjúkdómar, eitranir.
Ath, farið verður yfir bráð hjartavandamál í kaflanum „Bráð hjartavandamál“ í umsjón Kristjáns Sigfússonar) sjá neðar.

Sjúkdómsvandamál tengt börnum:
Section 7 í bók. Nemendur eiga að lesa kafla 44 í bók og mega reikna með prófspurningum upp úr því efni. Samtals er reiknað með u.þ.b 16 klst í bóklegt og verklegt ( þessi tími er fyrir utan starfsnám eftir lotu III) Reiknað er með að nemendur taki EPILS endurlífgunarnámskeið ERC (8 klst námskeið). Þar sem munur er á stöðluðum leiðbeiningum í endurlífgun annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Evrópu er ekki víst að efni í kennslubókinni sem tengist endurlífgun barna samræmist kennsluefni námskeiðsins.

Þess í stað mun verða notast við kennsluefni frá Evrópska Endurlífgunarráðinu.

Bráð hjartavandamál.
Hluti 21 í kennslubók og einnig verður hluti af hluti 17 notaður. Þar sem munur er á stöðluðum leiðbeiningum í endurlífgun annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Evrópu er ekki víst að efni í kennslubókinni sem tengist endurlífgun samræmist kennsluefni námskeiðsins. Þess í stað mun verða notast við kennsluefni frá Evrópska Endurlífgunarráðinu.

Fyrirkomulag:
Bóklegt í streymi á netinu.    Til að hefja nám í þessum áfanga þurfa nemendur að vera búnir að ljúka bæði ILS (sérhæfð endurlífgun 1) og EPILS (sérhæfð endurlífgun barna 1).  Boðið verður upp á bæði þessi námskeið í tengslum við lotuna og þarf að skrá sig sérstaklega á þau námskeið.  

Nemendur fá aðgang að moodle kerfi skólans þar sem eru fyrirlestrar sem nemendur verða að vera búnir að tileinka sér áður en þeir mæta í verklega lotu ásamt yfirferð á köflum í kennslubók.

Lotunni fylgir svo 24 tíma starfsþjálfun á sjúkrabíl með bráðatækni, 4 tímar á Hjartagátt, 8 tímar á BMT með áherslu á hjarta/sjúkdóma, 8 tímar á bráðadeild barna og 8 tímar á öldrunardeild.

Verð: Verð hverrar lotu í framhaldsnámi er kr. 160.000,-
Staðfestingargjald er kr. 40.000 og er óendurkræft.