Fara í efni
Til baka
18
maí
Tímabil: 18/05/2026 - 19/05/2026
Skráningu líkur: 11/05/2026
Lengd: 4 kennslustundir
Staðsetning: Sandgerði, slökkvistöð
Hámarksfjöldi: 16 manns
Kennari:
Anton Berg Carrasco
Umsjónarmaður: Anton Berg Carrasco

Lokafærnimat Sjúkraflutningaskólans 2026. Önnur af tveimur staðsetningum sem er í boði.  Haldið á Akureyri og í Sandgerði samtímis þessa daga.

Markmið: Færnimatinu er ætlað að prófa nemendur í meginmarkmiðum EMT-A námsins. Það fer fram að loknum öllum lotum í náminu. Standist nemandi færnimatið og hafi hann skilað öllum starfþjálfunarskýrslum EMT-A námsins og fengið þær viðurkenndar, telst hann hafa lokið framhaldsnámi í Sjúkraflutningum EMT-Advanced og hefur rétt til að kalla sig Neyðarflutningamann og leiða vinnu sjúkraflutningamanna í F1 og F2 tilfellum.
 
Viðfangsefni: Verklegt og munnlegt próf úr helstu þáttum EMT-A námsins.
 
Inntökuskilyrði: Hafa lokið öllum lotum í EMT-A námi og staðist próf í þeim. Starfsþjálfun sé lokið.
 
Námsmat: Einkunn er gefin sem staðið eða fallið. Nemandi hefur rétt á einni endurtekningu í verklegri stöð á prófadegi og annarri endurtekningu á næsta skipulögðum prófadegi.