Fara í efni
Til baka
21
ágú
Framhaldsnámskeið (EMT-A) Lota I (LOL, Lyfjafræði og Öndun)
Tímabil: 21/08/2026 - 24/08/2026
Lengd: 64 kennslustundir
Staðsetning: HVE Akranesi
Hámarksfjöldi: 16 manns
Kennari:
Kristján Karlsson
Umsjónarmaður: Kristján Karlsson

Sérnámskeið fyrir Heilbrigðisstofnun Vesturlands, HVE. Lokað fyrir aðrara skráningar.

Námskeiðslýsing:

 

Markmið:
Að nemandi auki við þekkingu sína sem sjúkraflutningamaður og verði betur í stakk búinn til að sinna neyðarflutningum. Áfanginn inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu í lyfjafræði, lífeðlisfræði öndunar og öndunarhjálp.

 

 

Viðfangsefni:
Grundvallaratriði lyfjagjafar, sé meðvitaður um nauðsynlegar varúðarráðstafanir við lyfjagjafir, þekki ábendingar fyrir lyfjagjöf, þekki búnað sem þarf til lyfjagjafar, kunni skil á réttri tækni við lyfjagjöf, þekki stærðfræðilegar skilgreiningar, kunni lyfjaútreikninga, þekki sex rétt atriði við lyfjagjöf, frásog vegna lyfjagjafar, aðgengi inn í blóðrás, almenn lyfjagjöf, vökvasett, frágang á óhreinum og oddhvössum áhöldum.

Helstu lyf sem notuð eru af sjúkraflutningamönnum með framhaldsmenntun, beta áhrif, alpha áhrif, frábendingar, ábendingar, aukaverkanir, skammtastærðir, verkun, hámarksskammta,vökva, uppsetningu IO, fimm rétta.

Að nemandi þekki líffærafræði öndunarvegar, átti sig á mikilvægi þess að tryggja öndunarveg.
Þekki og kunni að nota öndunarbúnað, geti metið sjúkling í andnauð, hvernig soga á úr öndunarvegi, bregðist við sérstökum tilfellum, , kunni útreikninga á súrefni, þekki rétta súrefnismeðferð, kunni rétt handtök við aðskotahlut í öndunarvegi, þekki og kunni að nota CPAP, Capnografia, þekki líffæra og lífeðlisfræði öndunar og öndunarvegar, þekki Astma og COPD, þekki áhrif hjartabilunar á öndun, þekki öndunaraðstoð sjúklinga með höfuðáverka.
Að nemandi þekki öndunarvegavandamál, handbrögð án hjálpartækja og ábendingar og frábendingar þeirra, ávinning og ókosti, barkakýlisgrímu, LTS túbu, aðstoð við Endotraceal túbu
 

Forkröfur:
Að nemandi hafi lokið grunnnámskeið í sjúkraflutningum EMT eða EMT-Basic.
Miðað er við að umsækjendur séu starfandi sjúkraflutningamenn og hafi amk. eins árs reynslu sem starfandi sjúkraflutningamenn. Senda skal staðfestingu á því á netfangið ems@ems.is. Nemendur sem hefja nám skulu standast bóklegt inntökupróf í námið. Það verður auglýst sérstaklega eftir að umsóknarfresti lýkur.

 
Námsmat:
Námskeiðinu lýkur með bóklegu og verklegu prófi. . Lágmarkseinkunn er 75% úr öllum hlutum bóklega námsins. Í verklegum lotum er símat á virkni og áhuga nemanda. Einkunn í verklegu er gefin sem staðinn eða fallinn.
 

Kennslubók:
Advanced EMT: A Clinical Reasoning Approach, 2nd Edition. Bókin er ekki innifalinn í  námskeiðsgjaldi. 
Advanced EMT: A Clinical reasoning approach, 2nd edition. Melissa Alexander, Richard Belle.                                                                               Útgefandi: Pearson 2024.                                                                                                                                                                                                             Tengill á bókina í Bóksölu stúdenta: boksala.is/ebooks/vs9780138165505/.

 

Verð:
Verð hverrar lotu í framhaldsnámi er kr. 160.000,-
 Staðfestingargjald er kr. 40.000 og er óendurkræft.