Streymisnámskeið með verklegum lotum í Reyðarfirði. Bóklegur hluti námskeiðs verður í gegnum Moodle kennslukerfis Verkmenntaskólans Akureyri á netinu. https://moodle.vma.is |
Staðsetning: |
Streymisnámskeið með verklegum lotum á Reyðarfirði. Bóklegur hluti námskeiðs verður í gegnum Moodle kennslukerfis Verkmenntaskólans Akureyri á netinu. https://moodle.vma.is Verklegar lotur verða á Slökkvistöð Slökkviliðs Fjarðarbyggðar að Hrauni á Reyðarfirði sem hér segir: Upphafslota lau-sun. 6.-7. feb, Verkleg lota 1. fös-sun 12.-14. feb Verkleg lota 2, fös-sun 26.-28. feb Verkleg lota 3, fös-sun 12.-14. mars Verkleg lota 4, lokalota fös-sun 26.-28. mars sem jafnframt er prófalota. Gert er ráð fyrir að starfsþjálfun fari fram í mars-maí. |
||||||||||||||
Markmið: | Að nemendur verði færir um að tryggja öryggi á vettvangi og meta ástand sjúklings. Þeir þurfa einnig að geta meðhöndlað og flutt sjúkling(a) á viðeigandi hátt.
Námskeiðið er í grunninn byggt á viðurkenndum bandarískum EMT staðli (Emergency Medical Technician) og inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu en er þó staðfært miðað við íslenskar aðstæður. Það er upphafið á heildarnámi sjúkraflutningamanna sem áætlað er að taki 3-4 ár. |
||||||||||||||
Viðfangsefni: | Í fyrirlestrunum er m.a. fjallað um starf sjúkraflutningamanna, öryggi, sóttvarnir og heilsuvernd. líffæra- og lífeðlisfræði, lífsmörk, öndunarhjálp, endurlífgun, skoðun og mat, almenna flutningstækni, skráningu og skýrslugerð, fæðingarhjálp, meðhöndlun sára og áverka svo eitthvað sé nefnt. Nemendur fá einnig viðeigandi verklega þjálfun í ofangreindum kennsluþáttum. Nemendur þurfa að ljúka 48 klukkustunda starfsþjálfun hjá viðurkenndum rekstraraðila í sjúkraflutningum sem uppfylla kröfur um starfsþjálfun, auk 8 klukkustunda starfsþjálfunar á sjúkrahúsi og 4 tíma starfskynningu hjá Neyðarlínu. | ||||||||||||||
Inntökuskilyrði: |
Umsækjandi skal hafa lokið 60 eininga (100 f-einingar) námi í framhaldsskóla eða sambærilegu námi og hafa innan við tveggja ára gamalt skírteini í skyndihjálp, að lágmarki 8 kennslustundir. Umsækjandi þarf að vera 18 ára á því ári sem nám er hafið. Rétt er að geta þess að flestir rekstraraðilar gera kröfu um að sjúkraflutningamenn séu 20 ára. Ef fleiri sækja um en sæti leyfa er raðað eftir menntun og reynslu umsækjenda. |
||||||||||||||
Námsmat: |
Grunnnámskeiðinu lýkur með prófi, bæði bóklegu og verklegu. Krafist er 75% árangurs í skriflegu prófi og nemendur skulu standast verkleg próf. Farið er fram á skyldumætingu í fyrirlestra og verklegar æfingar. Nemendur þurfa einnig að ljúka starfsþjálfun á sjúkrabílum, bráðamótttöku, Hjartagátt og hjá 112 og skila fullnægjandi starfsþjálfunarskýrslum. Að því loknu geta nemendur sótt um löggildingu til að hefja störf sem sjúkraflutningamenn með grunnmenntun. Athugið að til þess að starfa sem sjúkraflutningamaður þar viðkomandi að hafa fengið löggildingu sem sjúkraflutningamaður. |
||||||||||||||
Námsefni: |
|
||||||||||||||
Skráningartími: | Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 15. nóvember. Væntanlegir nemendur verða að skrá sig á vef skólans www.ems.is og senda gögn til staðfestingar inntökuskilyrðunum (ljósrit af einingafjölda (lágmark 60 einingar) og þátttöku á skyndihjálparnámskeiði). Gögnin skulu hafa borist skólastjóra fyrir lok skráningarfrests. Senda skal staðfest afrit af prófskirteini rafrænt á PDF formi á netfangið ie1214@sak.is Eftir að gögn hafa borist skólastjóra fer inntökunefnd í gegnum umsóknir. Þegar niðurstöður hennar liggja fyrir fá nemendur sem komast í námið upplýsingar um greiðslu staðfestingargjalds kr. 50.000. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt. |