Streymisnámskeið með verklegum lotum á Selfossi. Bóklegur hluti námskeiðs verður í gegnum Moodle kennslukerfis Sjúkraflutningaskólans á netinu. https://moodle.ems.is. Verklegar lotur verða í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 sem hér segir:
Lota 1, 3-4-5 febrúar 2025
Lota 2, 17-18-19. febrúar 2025
Lota 3, 3-4-5. mars 2025
Lota 4, 17-18-19 mars 2025
Lota 5, 31.mars 1-2. apríl 2025
Verklegar lotur eru fimm og hver lota eru 3 dagar.
Gert er ráð fyrir að starfsþjálfun fari fram í apríl-maí.
Skyldumæting er í allar verklegar lotur!
Streymisnámskeið með verklegum lotum á Selfossi. Bóklegur hluti námskeiðs verður í gegnum Moodle kennslukerfis Sjúkraflutningaskólans á netinu. https://moodle.ems.is. Verklegar lotur verða í Björgunarmiðstöðinni við Árveg 1 sem hér segir: Lota 1, 3-4-5 febrúar 2025 Lota 2, 17-18-19. febrúar 2025 Lota 3, 3-4-5. mars 2025 Lota 4, 17-18-19 mars 2025 Lota 5, 31.mars 1-2. apríl 2025 Verklegar lotur eru fimm og hver lota eru 3 dagar. Gert er ráð fyrir að starfsþjálfun fari fram í apríl-maí. Skyldumæting er í allar verklegar lotur! |
|||||||||||
Markmið: | |||||||||||
|
|||||||||||
Viðfangsefni: | |||||||||||
|
|||||||||||
Skilyrði: | |||||||||||
|
|||||||||||
Kröfur: | |||||||||||
Grunnnámskeiðinu lýkur með prófi, bæði bóklegu og verklegu. Krafist er 75% árangurs í skriflegu prófi og nemendur skulu standast verkleg próf. Farið er fram á skyldumætingu í fyrirlestra og verklegar æfingar. Nemendur þurfa einnig að ljúka starfsþjálfun á sjúkrabílum og bráðamótttöku og skila fullnægjandi starfsþjálfunarskýrslum. Að því loknu geta nemendur sótt um löggildingu til að hefja störf sem sjúkraflutningamenn með grunnmenntun. Tilhögun starfsþjálfunar í grunnnámi. Í skipulagi Fagráðs skólans um námið er skýrt að starfsþjálfun þarf að taka á ákveðin hátt. Þjálfun á sjúkrabíl 48 tímar. Þar þarf að taka lágmark 24 tíma sem þriðji maður á sjúkrabíl undir leiðsögn bráðatæknis, 24 tíma má taka sem þriðji maður á almennum bíl undir leiðsögn amk. neyðarflutningamanns. Vaktirnar skal taka þar sem eru sólarhringsvaktir og lágmarksfjöldi sjúkraflutinga er yfir 1000 á ári. Lágmarksfjöldi tilfella er 12-15 tilfelli (eftir dreifingu) og skulu þau spanna sem mest þau tilfelli sem sjúkraflutingamenn þurfa að kunna skil á í náminu. Ein 8 tíma vakt skal taka á Bráðamóttöku Landspítala, HSU Selfossi, HSS Keflavík eða Sjúkrahússins á Akureyri. Undirrituðum skýrslum og staðfestingu á vöktum skal skila til skrifstofu skólans þegar allar vaktir hafa verið teknar. Einnig má skila þeim í tölvupósti skönnuðum á PDF formi. Athugið að til þess að starfa sem sjúkraflutningamaður þar viðkomandi að hafa fengið löggildingu sem sjúkraflutningamaður. |
|||||||||||
Kennslubók: | |||||||||||
|
|||||||||||
Umsóknarfrestur: | |||||||||||
|