Fara í efni
Til baka
18
jan
Grunnnámskeið í sjúkraflutningum (EMT) streymisnámskeið Selfossi EMT Vor
Tímabil: 18/01/2027 - 30/04/2027
Skráningu líkur: 16/11/2026
Lengd: 260 kennslustundir
Staðsetning: Selfoss Björgunarmiðstöð
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennari:
Kjartan Kárason
Verð: 445.000 kr.
Umsjónarmaður: Kjartan Kárason

Grunnnámskeið í sjúkraflutningum, bóklegt á netinu en síðan eru fimm, þriggja daga lotur á Selfossi þar sem er skilyrðislaus skyldumæting. Dagssetningar á verklegum lotum liggja ekki fyrir en verða vonandi fljótlega komnar hér inn.

 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 

Umsóknarfrestur:
Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember. Væntanlegir nemendur verða að skrá sig á vef skólans og senda gögn til staðfestingar inntökuskilyrðunum. Gögnin eru staðfest afrit frá skóla þar sem fram koma einingar og prófskírteini ef námi er lokið (lágmark 100 Framhaldsskólaeiningum ) og þátttöku á skyndihjálparnámskeiði eða sambærilegu (First Responder eða WFR). Athugið að miðað er við gild réttindi í skyndihjálp. Ef fleiri sækja um en laus sæti þá er farið eftir inntökureglum skólans.

Gögnin skulu hafa borist skólanum fyrir lok skráningarfrests. Senda skal gögnin sem PDF viðhengi á netfangið ems@ems.is

Verð: 445.000,-

Eftir að gögn hafa borist skólanum fer inntökunefnd í gegnum umsóknir. Þegar niðurstöður hennar liggja fyrir fá nemendur sem komast í námið upplýsingar um greiðslu staðfestingargjalds kr. 70.000. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt. Eftirstöðvar kr. 375 þúsund verða rukkaðar meðan á námi stendur.