Fara í efni

Aðgerðaáætlun um sjúkraflutninga og bráðaþjónustu til ársins 2030 komin út.

Aðgerðaáætlunina vann vinnuhópur, skipaður breiðum hópi hagaðila og fagfólki sem tengist málefnum sjúkraflutninga um allt land. Í starfi sínu studdist hann við stefnu um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga til ársins 2030 og heilbrigðisstefnu til ársins 2030.

Áhersla er lögð á samræmingu og skýra forystu í málaflokknum og vel skilgreinda verkaskiptingu og ábyrgð þeirra aðila sem að sjúkraflutningum koma. Unnin verða samræmd þjónustuviðmið og útkallsáætlanir fyrir hvert svæði landsins þar sem m.a. verður kveðið á um viðbragðstíma, menntunarkröfur og stigun viðbragða. Þá verður stafræn skráning í sjúkraflutningum efld til að bæta yfirsýn, gæðamat og öryggi þjónustunnar.

„Með aðgerðaáætluninni er lagður grunnur að áframhaldandi þróun öflugrar, samræmdrar og sjúklingamiðaðrar bráðaþjónustu á Íslandi“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Efling náms og símenntunar

Í áætluninni er fjallað um mönnun og menntun, m.a. eflingu náms og mat á ávinningi þess að bjóða upp á nám bráðatækna við íslenska háskóla. Lagt er til að mótaður verði rammi um símenntun fyrir sjúkraflutningamenn og bráðatækna sem starfa við sjúkraflutninga og unnin drög að skilgreindum hæfniviðmiðum. Einnig eru lagðir til möguleikar á tilfærslu verkefna og breyttri verkaskiptingu milli heilbrigðisstétta til að tryggja að menntun og hæfni heilbrigðisstétta nýtist sem best. Hermiþjálfun verður aukin og sérstök námskeið boðin fyrir heilbrigðisstarfsfólk og viðbragðsaðila sem koma að bráðaþjónustu utan heilbrigðisstofnana.

Umgjörð og boðun vettvangsliða verður styrkt, en vettvangsliðar er samheiti fyrir fyrstuhjálparliða sem nýttir eru til að veita fyrstu hjálp áður en neyðar- eða sjúkrabíll mætir á svæðið. Síðast en ekki síst er áhersla lögð á að virkja nærsamfélagið í hverjum stað í bráðaviðbragði til að auka líkur á góðri útkomu þegar á reynir.