Fara í efni

Sjúkraflutningaskólinn útskrifar 206 nemendur

Útskriftarnemar sem mættu til útskriftar 2. júní 2023
Útskriftarnemar sem mættu til útskriftar 2. júní 2023

Útskrift Sjúkraflutningaskólans var haldin á Flugsafni Íslands á Akureyri föstudaginn 2. júní sl. 

Útskrifaðir voru 206 nemendur eftir skólaárið 2022-2023.

Þar af eru 96 að útskrifast með grunnréttindi sem sjúkraflutningamenn, EMT, eftir 260 klst nám.

28 útskrifast með framhaldsmenntun í sjúkraflutningum, AEMT, eftir 413 klst nám.

82 vettvangsliðar EMR, eftir 42 klst nám.

Sjá nánar á FB síðu skólans: https://www.facebook.com/www.ems.is/

Auk þeirra námskeiða sem að áður greinir sinnir skólinn endurmenntunarnámskeiðum fyrir heilbrigðisstarfsfólk auk þess sem við bjóðum upp á endurlífgunarnámskeið frá Evrópska Endurlífgunarráðinu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og sinnum Heilbrigðisstofnunum víða um land með ný- og símenntun sjúkraflutningamanna, hjúkrunarfræðinga og lækna. Frá síðustu útskrift hefur skólinn haldið 34 endurmenntunarnámskeið með samtals 274 nemendum.

Námskeið Sjúkraflutningaskólans eru haldin um allt land en grunn og framhaldsnámskeið voru kennd á Akureyri, Selfossi, Fáskrúðsfirði, Reykjavík og Sandgerði.

Ávarp skólastjóra.