Fara í efni

Skráning hafinn í grunnnám á vorönn 2021.

Búið er að opna fyrir umsóknir um grunnnám í sjúkraflutningum á vorönn 2021. Bæði verður boðið upp á nám í streymi (fjarnám) og staðarnám. Staðarnámið verður á höfuðborgarsvæðinu og kennt í 5 vikur, alla virka daga frá 8-17. Steymisnámskeiðið er sent út á netinu en auk þess þurfa nemendur að mæta í fimm verklegar lotur sem eru ýmist 2 eða 3 dagar. Verklegar lotur verða á Sjúkrahúsinu á Akureyri (að hluta einnig á Slökkvistöðinni á Akureyri, Slökkvistöðinni í Sandgerði og Slökkvistöðinni á Reyðarfirði ef næg þátttaka fæst á hverjum stað.Umsóknarfrestur er til og með 15. nóvember 2020 og frestur til að skila fylgigögnum er til 20. nóvember 2020. Staðfestingargjald, kr. 50 þúsund, þarf síðan að greiða fyrir 10. janúar 2021 fyrir þá sem samþykktir verða í námið.

Hér má sjá skipulagið á verklegum lotum og hér að neðan eru hlekkir á viðkomandi hópa.

Námskeið með verklegum lotum á Akureyri
Námskeið með verklegum lotum á Reyðarfirði
Námskeið með verklegum lotum í Sandgerði, hópur 1
Námskeið með verklegum lotum í Sandgerði, hópur 2
Staðarnámskeið i Reykjavík

Til að hefja nám í sjúkraflutningum þarf að uppfylla eftirtalin skilyrði:

Vera 18 ára á því ári sem nám er hafið.

Hafa lokið amk. 60 einingum úr viðurkenndum framhaldsskóla.

Hafa innan við tveggja ára gamalt skirteini í skyndihjálp.
Ekki er krafa um meirapróf (leigubílaréttindi) til að hefja nám í sjúkraflutningaskólanum.

Grunnnám í sjúkraflutningum tekur nú um 7 vikur og lýkur með bóklegu og verklegu prófi.

Eftir það er hægt að sækja um löggildingu sem sjúkraflutningamaður til að mega hefja störf en til viðbótar er ætlast til að nemendur ljúki 390 klst framhaldsnámi á þremur árum eftir að grunnámi lýkur.

Grunnnám er yfirleitt bæði í boði sem staðarnám (kennt alla virka daga frá 8-17, samfellt nám) og sem streymisnám. Í streymisnámi er hluti námsins kenndur í streymi á netinu en nemendur þurfa að mæta í 5 staðarlotur sem eru blanda af bóklegu, verklegu og prófum.

Auk þess þurfa nemendur að taka 60 tíma starfsnám (starfsþjálfun) sem eru 48 tímar á sjúkrabíl, 8 tímar á bráðamóttöku auk 4 tima hjá Neyðarlínu (112).

Nánar um námið.

Boðið er upp á grunnnámskeiðin í febrúar ár hvert og stendur það fram í mars-apríl (eftir því hvort um staðarnám eða streymisnám er að ræða).

Opnað er fyrir umsóknir (sjá undir námskeið á valstiku) 1. október og rennur umsóknarfrestur út 15. nóvember 2019.

Grunnnámskeiðið kostar 350 þúsund (2021)

Nánari upplýsingar gefur skólastjóri í síma 463-0853 á skrifstofutíma eða í netfangið ems@ems.is