Fara í efni

Valur Freyr Halldórsson ráðinn verkefnisstjóri

Valur Freyr (smellið á mynd )
Valur Freyr (smellið á mynd )

Valur Freyr Halldórsson hefur verið ráðinn fag- og verkefnisstjóri hjá Sjúkraflutningaskólanum í fullt starf.  Valur er menntaður hjúkrunarfræðingur og bráðatæknir og hefur starfað hjá Slökkviliði Akureyrar sl. 21 ár, auk margra annara verka svo sem í tónlist en hann er einn meðlima Hvanndalsbræðra auk fleiri tónlistarhópa.  Hann hefur einnig verið verkefnisstjóra hjá Sjúkraflutningaskólanum sl. tvö ár í hlutastarfi en verið umsjónarmaður námskeiða og verkefnisstjóri í verktöku í mörg ár þar á undan.
Valur ber ábyrgð á námsefni og uppfærslu þess, auk þess að sinna öðrum verkefnum sem snúa að skipulagi námskeiða, einkunn í framhaldsnámi og endurmenntun.

Það er mikið fagnaðarefni að fá jafn reyndan mann og Val til starfa og við bjóðum hann hjartanlega velkominn til starfa.