Fara í efni
Til baka
24
okt
Framhaldsnámskeið EMTA Lota III Hjarta- og bráðasjúkdómar
Tímabil: 24/10/2022 - 28/10/2022
Skráningu líkur: 15/08/2022
Lengd: 88 kennslustundir
Staðsetning: Sjúkrahúsið á Akureyri
Hámarksfjöldi: 10 manns
Kennarar:
Kristján Sigfússon, Valur Halldórsson
Umsjónarmaður: Valur Halldórsson

Þriðja lota í framhaldsnámskeiði í sjúkraflutningum AEMT verður haldin á  Akureyri í haust ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið fer fram með áhorfi á netinu og endar með sex daga verklegri lotu sem endar með bóklegu og verklegu prófi. Dagssetningar á verklegri lotu verða mán 24. okt til fös 28. október. Medical mán 24. og 1/2 þri 25., Barna 1/2 þri 25. Hjarta mið 26., fim 27., 1/2 fös 28.og próf 1/2 fös 28.  Rétt er að benda á að einnig þarf að taka ILS og EPILS námskeið samhliða Lotu 3 en þau eru í boði lau. 22. okt.  (ILS) og sun 23. okt (EPILS).

Markmið:
Að gera nemendur færa um að meta ástand mikið veikra og slasaðra sjúklinga, taka ákvörðun um og beita allri nauðsynlegri og viðeigandi bráðameðferð. Að gera nemendur færa um að leiða teymi sjúkraflutningamanna í bráðatilfellum og geta beitt þeim inngripum sem ætlast er til að námi loknu.

Viðfangsefni:
Sjúkdómar og sjúkdómafræði.
Hluti 5 í kennslubók. Nemendur lesa kafla 20-32 í bók og mega reikna með prófspurningum upp úr því efni. Samtals er reiknað með u.þ.b 27 klst í bóklegt og verklegt (þessi tími er fyrir utan starfsnám eftir lotu III)
Meðal efnis: Öndunarfæravandamál (upprifjun úr lotu I) taugakerfisvandamál, Innkirtlavandamál, kviðarholssjúkdómar, ofnæmissjúkdómar, þvagfærasjúkdómar og þvagfæratengd vandamál, sýkingar og sýkingalost, sjúkdómar í augum,hálsi, nefi og eyrum, geðrænir sjúkdómar, eitranir.
Ath, farið verður yfir bráð hjartavandamál í kaflanum „Bráð hjartavandamál“ í umsjón Kristjáns Sigfússonar) sjá neðar.

Sjúkdómsvandamál tengt börnum:
Section 7 í bók. Nemendur eiga að lesa kafla 44 í bók og mega reikna með prófspurningum upp úr því efni. Samtals er reiknað með u.þ.b 16 klst í bóklegt og verklegt ( þessi tími er fyrir utan starfsnám eftir lotu III) Reiknað er með að nemendur taki EPILS endurlífgunarnámskeið ERC (8 klst námskeið). Þar sem munur er á stöðluðum leiðbeiningum í endurlífgun annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Evrópu er ekki víst að efni í kennslubókinni sem tengist endurlífgun barna samræmist kennsluefni námskeiðsins.

Þess í stað mun verða notast við kennsluefni frá Evrópska Endurlífgunarráðinu.

Bráð hjartavandamál.
Hluti 21 í kennslubók og einnig verður hluti af hluti 17 notaður. Þar sem munur er á stöðluðum leiðbeiningum í endurlífgun annars vegar í Bandaríkjunum og hins vegar í Evrópu er ekki víst að efni í kennslubókinni sem tengist endurlífgun samræmist kennsluefni námskeiðsins. Þess í stað mun verða notast við kennsluefni frá Evrópska Endurlífgunarráðinu.

Fyrirkomulag:
Bóklegt í streymi á netinu.    Til að hefja nám í þessum áfanga þurfa nemendur að vera búnir að ljúka bæði ILS (sérhæfð endurlífgun 1) og EPILS (sérhæfð endurlífgun barna 1).  Boðið verður upp á bæði þessi námskeið í tengslum við lotuna og þarf að skrá sig sérstaklega á þau námskeið.  

Nemendur fá aðgang að moodle kerfi skólans þar sem eru fyrirlestrar sem nemendur verða að vera búnir að tileinka sér áður en þeir mæta í verklega lotu ásamt yfirferð á köflum í kennslubók.

Lotunni fylgir svo 24 tíma starfsþjálfun á sjúkrabíl með bráðatækni, 4 tímar á Hjartagátt, 8 tímar á BMT með áherslu á hjarta/sjúkdóma, 8 tímar á bráðadeild barna og 8 tímar á öldrunardeild.

Verð: Verð hverrar lotu í framhaldsnámi er kr. 160.000,-
Staðfestingargjald er kr. 40.000 og er óendurkræft.