Grunnnámskeið í sjúkraflutningum EMT verður haldið á Austurlandi (Fáskrúðsfirði) ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið fer fram með áhorfi á netinu og fimm þriggja daga verklegum lotum sem enda með bóklegu og verklegu prófi. Dagssetningar á verklegum lotum eru hér að neðan, smellið á viðkomandi lotu til að sjá dagskrá og efni sem þarf að horfa á og lesa fyrir hverja lotu. Rétt er að benda á að umsækjendur þurfa að hafa lokið 2 ára námi í framhaldsskóla (lágmark 60 ein eða 100 F-ein) auk þess að hafa gilt skírteini í skyndihjálp. Skólinn mun hafa milligöngu um námskeið í skyndihjálp fyrir þá sem það þurfa.
Hér er yfirlit yfir efnið og hvað skal lesa og horfa á fyrir hverja lotu:
Verklegar lotur verða sem hér segir:
Staðsetning: |
Streymisnámskeið með verklegum lotum á Fáskrúðsfirði. Bóklegur hluti námskeiðs verður í gegnum Moodle kennslukerfis Sjúkraflutningaskólans á netinu. https://moodle.ems.is. |
||||||||||
Markmið: | Að nemendur verði færir um að tryggja öryggi á vettvangi og meta ástand sjúklings. Þeir þurfa einnig að geta meðhöndlað og flutt sjúkling(a) á viðeigandi hátt.
Námskeiðið er í grunninn byggt á viðurkenndum bandarískum EMT staðli (Emergency Medical Technician) og inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu en er þó staðfært miðað við íslenskar aðstæður. Það er upphafið á heildarnámi sjúkraflutningamanna sem áætlað er að taki 3-4 ár. |
||||||||||
Viðfangsefni: | Í fyrirlestrunum er m.a. fjallað um starf sjúkraflutningamanna, öryggi, sóttvarnir og heilsuvernd. líffæra- og lífeðlisfræði, lífsmörk, öndunarhjálp, endurlífgun, skoðun og mat, almenna flutningstækni, skráningu og skýrslugerð, fæðingarhjálp, meðhöndlun sára og áverka svo eitthvað sé nefnt. Nemendur fá einnig viðeigandi verklega þjálfun í ofangreindum kennsluþáttum. Nemendur þurfa að ljúka 48 klukkustunda starfsþjálfun hjá viðurkenndum rekstraraðila í sjúkraflutningum sem uppfylla kröfur um starfsþjálfun, auk 8 klukkustunda starfsþjálfunar á sjúkrahúsi og 4 tíma starfskynningu hjá Neyðarlínu. | ||||||||||
Inntökuskilyrði: |
Umsækjandi skal hafa lokið 60 eininga (100 f-einingar) námi í framhaldsskóla eða sambærilegu námi og hafa innan við tveggja ára gamalt skírteini í skyndihjálp, að lágmarki 8 kennslustundir. Senda skal gögnin sem PDF viðhengi á netfangið ie1214@sak.is. Umsækjandi þarf að vera 18 ára á því ári sem nám er hafið. Rétt er að geta þess að flestir rekstraraðilar gera kröfu um að sjúkraflutningamenn séu 20 ára. Ef fleiri sækja um en sæti leyfa er raðað eftir menntun og reynslu umsækjenda. |
||||||||||
Námsmat: |
Grunnnámskeiðinu lýkur með prófi, bæði bóklegu og verklegu. Krafist er 75% árangurs í skriflegu prófi og nemendur skulu standast verkleg próf. Farið er fram á skyldumætingu í fyrirlestra og verklegar æfingar. Nemendur þurfa einnig að ljúka starfsþjálfun á sjúkrabílum, bráðamótttöku, Hjartagátt og hjá 112 og skila fullnægjandi starfsþjálfunarskýrslum. Að því loknu geta nemendur sótt um löggildingu til að hefja störf sem sjúkraflutningamenn með grunnmenntun. Athugið að til þess að starfa sem sjúkraflutningamaður þar viðkomandi að hafa fengið löggildingu sem sjúkraflutningamaður. |
||||||||||
Námsefni: |
|
||||||||||
Skráningartími: | Umsóknarfrestur er til og með föstudagsins 15. ágúst. Væntanlegir nemendur verða að skrá sig á vef skólans og senda gögn til staðfestingar inntökuskilyrðunum. Gögnin eru staðfest afrit frá skóla þar sem fram koma einingar og prófskírteini ef námi er lokið (lágmark 60 einingar) og þátttöku á skyndihjálparnámskeiði eða sambærilegu. Athugið að miðað er við gild réttindi í skyndihjálp.
Eftir að gögn hafa borist skólastjóra fer inntökunefnd í gegnum umsóknir. Þegar niðurstöður hennar liggja fyrir fá nemendur sem komast í námið upplýsingar um greiðslu staðfestingargjalds kr. 60.000. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt en dregst frá heildarverði námskeiðs sem er 390.000,- |