Fara í efni
Til baka
3
okt
Grunnnámskeið í sjúkraflutningum streymisnámskeið EMT Reykjavík EMT
Tímabil: 03/10/2022 - 30/11/2022
Skráningu líkur: 16/08/2022
Lengd: 260 kennslustundir
Staðsetning: Tunguháls, slökkvistöð
Hámarksfjöldi: 12 manns
Kennari:
Kjartan Kárason
Verð: 390.000 kr.
Umsjónarmaður: Kjartan Kárason

Grunnnámskeið í sjúkraflutningum EMT verða haldið í Sandgerði, Reykjavík og Akureyri ef næg þátttaka fæst. Námskeiðið fer fram með áhorfi á netinu og fimm þriggja daga verklegum lotum sem enda með bóklegu og verklegu prófi. Dagssetningar á verklegum lotum eru hér að neðan, smellið á til að sjá dagskrá og efni sem þarf að skoða fyrir hverja lotu. Rétt er að benda á að umsækjendur þurfa að hafa lokið 2 ára námi í framhaldsskóla (lágmark 60 ein eða 100 F-ein) auk þess að hafa gilt skírteini í skyndihjálp. Skólinn mun hafa milligöngu um námskeið í skyndihjálp fyrir þá sem það þurfa.

 

Hér er yfirlit yfir efnið og hvað skal lesa og horfa á fyrir hverja lotu:

Verklegar lotur verða sem hér segir:

Upphafslota mán-þri 3.-4. Okt

Lota 1 mán-mið 17.-19. Okt

Lota 2 mán-mið 31. Okt- 3. nóv

Lota 3 mán-mið 14.-16. nóv

Lota 4 mán-mið 28.-30. nóv.

Upptökupróf ef þarf lau 6. Des.

   

 

Bóklegt nám í fjarnámi gegnum Moodle námskerfi Sjúkraflutningaskólans á netinu. https://moodle.ems.is. Verklegar lotur verða í slökkvistöð  SHS í Tunguhálsi í  Reykjavík.

Skyldumæting er í allar verklegar lotur!

 
Markmið: Námskeiðið er í grunninn byggt á viðurkenndum bandarískum EMT staðli (Emergency Medical Technician) og inniheldur bæði bóklega og verklega kennslu en er þó staðfært miðað við íslenskar aðstæður. Það er upphafið á heildarnámi sjúkraflutningamanna sem áætlað er að taki 3-4 ár.
 
Viðfangsefni: Í fyrirlestrunum er m.a. fjallað um starf sjúkraflutningamanna, öryggi, sóttvarnir og heilsuvernd. líffæra- og lífeðlisfræði, lífsmörk, öndunarhjálp, endurlífgun, skoðun og mat, almenna flutningstækni, skráningu og skýrslugerð, fæðingarhjálp, meðhöndlun sára og áverka svo eitthvað sé nefnt. Nemendur fá einnig viðeigandi verklega þjálfun í ofangreindum kennsluþáttum. Nemendur þurfa að ljúka 48 klukkustunda starfsþjálfun hjá viðurkenndum rekstraraðila í sjúkraflutningum sem uppfylla kröfur um starfsþjálfun, auk 8 klukkustunda starfsþjálfunar á Bráðamóttöku og 4 tíma starfskynningu hjá Neyðarlínu.
 
Inntökuskilyrði:

Umsækjandi skal hafa lokið 60 eininga (100 f-einingar) námi í framhaldsskóla eða sambærilegu námi og hafa innan við tveggja ára gamalt skírteini í skyndihjálp, að lágmarki 8 kennslustundir.

Umsækjandi þarf að vera 18 ára á því ári sem nám er hafið. Rétt er að geta þess að flestir rekstraraðilar gera kröfu um að sjúkraflutningamenn séu 20 ára.

Ef fleiri sækja um en sæti leyfa er raðað eftir menntun og reynslu umsækjenda.

Þeir sem eru sendir á vegum rekstraraðila eða hafa meðmæli frá rekstraraðilum hafa forgang á námskeiðið.

 
Námsmat:

Grunnnámskeiðinu lýkur með prófi, bæði bóklegu og verklegu. Krafist er 75% árangurs í skriflegu prófi og nemendur skulu standast verkleg próf. Farið er fram á skyldumætingu í fyrirlestra og verklegar æfingar. Nemendur þurfa einnig að ljúka starfsþjálfun á sjúkrabílum, bráðamótttöku, Hjartagátt og hjá 112 og skila fullnægjandi starfsþjálfunarskýrslum. Að því loknu geta nemendur sótt um löggildingu til að hefja störf sem sjúkraflutningamenn með grunnmenntun.

Athugið að til þess að starfa sem sjúkraflutningamaður þar viðkomandi að hafa fengið löggildingu sem sjúkraflutningamaður.

 
Námsefni:
 

Emergency Care, 13/E

Limmer, O'Keefe, Grant, Murray, Bergeron & Dickinson

ISBN-10: 0134024559 • ISBN-13: 9780134024554

©2016

Athugið að kennslubókin eru ekki innifalin á námskeiðsverði en hægt að panta bæði á erlendum bókasölum en einnig hjá Bóksölu studenta. Panta þarf bókina með fyrirvara.

ISBN númerið er einskonar kennitala bókarinnar til að tryggja að um sé að ræða rétta bók. Kennslubókin hefur tvö ISBN númer, bæði í flokki 10 og 13 en þetta er sama bókin.

 
Skráningartími:

Umsóknarfrestur er til og með þriðjudagsins 15. nóvember. Væntanlegir nemendur verða að skrá sig á vef skólans og senda gögn til staðfestingar inntökuskilyrðunum. Gögnin eru staðfest afrit frá skóla þar sem fram koma einingar og prófskírteini ef námi er lokið (lágmark 60 einingar) og þátttöku á skyndihjálparnámskeiði eða sambærilegu. Athugið að miðað er við gild réttindi í skyndihjálp.

Gögnin skulu hafa borist skólastjóra fyrir lok skráningarfrests. Senda skal ofangreind gögn rafrænt á PDF formi á netfangið ie1214@sak.is

 

 

Eftir að gögn hafa borist skólastjóra fer inntökunefnd í gegnum umsóknir. Þegar niðurstöður hennar liggja fyrir fá nemendur sem komast í námið upplýsingar um greiðslu staðfestingargjalds kr. 60.000. Staðfestingargjald fæst ekki endurgreitt. Eftirstöðvar kr. 330 þúsund verða rukkaðar meðan á námi stendur.